Gettó bræður

Velkomin(n) í gettóið

30.01.2007 21:57:17 / presley

Brot úr ævi geðsjúklingssins Happy !!!

Klukkan er 17.03 þriðjudaginn 30.janúar 2007

“djö... er ég að drepast í maganum, já ég er sammála þér ég held að Þjóðverjar klári þetta. Það er ekkert grín að vinna þá á heimavelli. Jæja ég er farinn heim að horfa á leikinn. Verð að horfa á þetta einn”

17.49

“hvað segir þú Óskar á að horfa á leikinn hér ? ok þú hefur það þá bara gott, ég horfi á þetta einn. Það er víst best að vera ekkert að bjóða öðru fólki upp á þessar geðsveiflur hvort eð er”

18.23

Úff ég hef ekkert étið, verð að þjóta út í Þín verslun. Fá mér eitthvað. Hvað á ég að kaupa, drífa sig það er að byrja leikur !!! Kex, súrmjólk og Höfðingja ostur !!! er það nú matarræði ??? Helli upp á kaffi. Úfff... hef ekki verið svona stressaður síðan... tja ég man bara ekki eftir að hafa verið svona stressaður (uuuuhhummm ertu búinn að gleyma flugferðum milli Bakka og Eyja ???) svona þú fockar ekkert í mér ég er hinn hlutinn af þér, þekki þig góurinn !!!

19.36

Váááá bíddu byrjaði fyrri hálfeikur ??? því líkur hraði !!! Erum yfir en mér líður alls ekki vel. Höfum enga stjórn á hraðanum og vörnin hræðileg. Mér líður eitthvað skringilega. Uuuuuuuuu... ég átti von á þessu... hálfleikur eigum eitt mark og ein æla komin í hús !!!

“blessaðu Pétur ég á ekki til orð, sit stjarfur hérna... já ég er einn. Kíkja á þig ??? er það nokkuð þorandi, ég er alls ekki húsum hæfur ??? Jæja þetta er að byrja, heyri í þér”

19.54

Ég vissi þetta, erum alveg að gera í brækurnar. Þetta er búið. Eigum ekki séns. Hvað eru þeir að gera þarna á bekknum. Skiptið um markmann. Hvað ertu að gera með Loga þarna inná ??? Dísús gerið eitthvað !!!

20.35

Alltaf sagt að Snorri væri toppmaður. Algjör snillingur hann Alfreð. Svei mér þá við vinnum þetta. 

Framlenging... hef ekki hugmynd um hvað klukkan er...

Kominn til Péturs. Þoldi ekki að horfa á þetta einn !!! Var að hugsa um að láta eitthvað vaða í TV-ið. Get sjálfsagt ekki horft á svonalagað einn í framtíðinni. Get ekki hamið mig nema að vera með fólki. 

“LOOOOGGGIIIIIIII !!! djöfulsins steik er þetta !!! afhverju róaði hann ekki bara ??? ansk... djöf.... helv... já ég veit krakkarnir, sorrý !!! oooohhh verðum að fá einhverjar tuðrur varðar”

“nnnnnnnneeeeeeeeeeiiiiiii hvað ertu að spá ??? afhverju spiluðum við ekki út tímann ???"

Þetta er búið..........................................

Takk fyrir túkall, leikir um 5-8 sæti.... MEIRIHÁTTAR !!!

 

Sjónvarpið eftir leik...

Tja sko ef Alexander hefði nú... “EF ??? EF ??? ertu ekki að grínast það er EKKERT EF Í ÍÞRÓTTUM” Ég þoli ekki þessa EF menn. Ef ég væri nú ríkur ? Ef ég ætti nú konu sem væri gullfalleg, eldaði alltaf góðan mat og tuðaði aldrei ??? hummm... væri nær að velta því Efi fyrir sér en þessu !!!

 

Jæja farinn. Búinn að gera upp HM !!! Endum í 6.sæti punktur og basta !!! Skúli minn nú getum við öll farið að fylgjast með Hniti í sjónvarpinu í staðinn, eða var það Badminton ? æ skiptir ekki máli...

 

 

 

 

Kveðja,

Happy Hauðar með tárum og trega.

 

 

Jollinn skrifaði
Eins og ef er lítið orð þá er það alveg hrikalega stórt. Spáðu í því EF ég væri fæddur 1883 þá hefði ég aldrei séð þennan leik og þá væri ég ekki fúll!!! Ég væri alveg til í að þetta EF væri til!!! Díses ég veit ekki einu sinni um hvað ég er að skrifa hérna EF ég bara vissi það!!!
Baldur Már skrifaði
Þetta var svo grátlegt, verst að sennilega munum við ekki eiga svona góðan séns í verðlaun alveg á næstunni. Sé ekki alveg hver á að taka við þessu. Nema bara þú kallinn :o)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.