Klukkan er 17.03 þriðjudaginn
30.janúar 2007
“djö... er ég að drepast í maganum, já ég er
sammála þér ég held að Þjóðverjar klári þetta. Það
er ekkert grín að vinna þá á heimavelli. Jæja ég
er farinn heim að horfa á leikinn. Verð að horfa
á þetta einn”
17.49
“hvað segir þú Óskar á að horfa á leikinn hér
? ok þú hefur það þá bara gott, ég horfi á þetta
einn. Það er víst best að vera ekkert að bjóða
öðru fólki upp á þessar geðsveiflur hvort eð er”
18.23
Úff ég hef ekkert étið, verð að þjóta út í Þín
verslun. Fá mér eitthvað. Hvað á ég
að kaupa, drífa sig það er að byrja leikur
!!! Kex, súrmjólk og Höfðingja ostur !!! er það
nú matarræði ??? Helli upp á
kaffi. Úfff... hef ekki verið svona stressaður
síðan... tja ég man bara ekki eftir að hafa verið svona stressaður
(uuuuhhummm ertu búinn að gleyma flugferðum milli Bakka og Eyja
???) svona þú fockar ekkert í mér ég er hinn hlutinn af þér, þekki
þig góurinn !!!
19.36
Váááá bíddu byrjaði fyrri hálfeikur ??? því líkur
hraði !!! Erum yfir en mér líður alls ekki vel. Höfum
enga stjórn á hraðanum og vörnin hræðileg. Mér
líður eitthvað skringilega. Uuuuuuuuu... ég átti
von á þessu... hálfleikur eigum eitt mark og ein æla komin í hús
!!!
“blessaðu Pétur ég á ekki til orð, sit stjarfur
hérna... já ég er einn. Kíkja á þig ??? er það
nokkuð þorandi, ég er alls ekki húsum hæfur
??? Jæja þetta er að byrja, heyri í þér”
19.54
Ég vissi þetta, erum alveg að gera í
brækurnar. Þetta er búið. Eigum ekki
séns. Hvað eru þeir að gera þarna á
bekknum. Skiptið um
markmann. Hvað ertu að gera með Loga þarna inná
??? Dísús gerið eitthvað !!!
20.35
Alltaf sagt að Snorri væri
toppmaður. Algjör snillingur hann
Alfreð. Svei mér þá við vinnum
þetta.
Framlenging... hef ekki hugmynd um hvað klukkan
er...
Kominn til Péturs. Þoldi ekki að horfa
á þetta einn !!! Var að hugsa um að láta eitthvað
vaða í TV-ið. Get sjálfsagt ekki horft á
svonalagað einn í framtíðinni. Get ekki hamið mig
nema að vera með fólki.
“LOOOOGGGIIIIIIII !!! djöfulsins steik er þetta
!!! afhverju róaði hann ekki bara ??? ansk...
djöf.... helv... já ég veit krakkarnir, sorrý
!!! oooohhh verðum að fá einhverjar tuðrur
varðar”
“nnnnnnnneeeeeeeeeeiiiiiii hvað ertu að spá ???
afhverju spiluðum við ekki út tímann ???"
Þetta er
búið..........................................
Takk fyrir túkall, leikir um 5-8 sæti....
MEIRIHÁTTAR !!!
Sjónvarpið eftir leik...
Tja sko ef Alexander hefði nú... “EF ??? EF ???
ertu ekki að grínast það er EKKERT EF Í ÍÞRÓTTUM” Ég
þoli ekki þessa EF menn. Ef ég væri nú ríkur ? Ef
ég ætti nú konu sem væri gullfalleg, eldaði alltaf góðan mat og
tuðaði aldrei ??? hummm... væri nær að velta því Efi fyrir sér en
þessu !!!
Jæja farinn. Búinn að gera upp HM !!!
Endum í 6.sæti punktur og basta !!! Skúli minn nú
getum við öll farið að fylgjast með Hniti í sjónvarpinu í staðinn,
eða var það Badminton ? æ skiptir ekki máli...

Kveðja,
Happy Hauðar með tárum og trega.